Moby með nýjan disk Moby gefur út nýjan disk í maí á þessu ári. Nafn nýju plötunnar er “18”.

Moby útskýrir nafngiftina: “Auk þess sem diskurinn heitir 18 vegna þess að það eru 18 lög á honum, þá eru langsóttari ástæður fyrir því að hann heitir þessu nafni…”

Diskurinn var hljóðritaður í stúdíói kappans í New York á síðustu 12 mánuðum og inniheldur eins og áður sagði 18 ný lög. Nokkrir gestir koma fram ásamt Moby á disknum, óstaðfestar fregnir herma að meðal þeirra séu sálarsöngkonan Angie Stone og rapparinn MC Lyte.

Fyrsta smáskífan af disknum heitir “We Are All Made Of Stars” og kemur út í apríl.

Moby fylgir disknum eftir með tónleikaferðalagi og mun spila um víðan völl á þessu og næsta ári.

http://www.moby.com