David Guetta ásamt Gus Gus í Laugardalshöllinni 16. júní David Guetta, Gus Gus og nokkrir af færustu plötusnúðum Íslands koma fram á þessum einstaka tónlistarviðburði sem aldrei áður hefur verið settur upp á Íslandi.

Í aðeins eitt kvöld verður Höllinni breytt í stærsta skemmtistað á Íslandi og verður engu til sparað við að gera þennan viðburð að einhverju því eftirminnilegasta í Íslensku tónleika og skemmtanalífi.

18 ára aldurstakmark verður sett þetta kvöld í Höllinni þar sem gleðin mun standa fram á nótt og mun verða áfengissala fyrir þá sem hafa náð 20 ára aldri.

David Guetta er án efa eitt stærsa nafnið í danstónlistarheiminum í dag og hefur verið með lög í í toppsætum vinsældarlista í Evrópu síðustu mánuði, m.a hér á Íslandi, eftir útgáfu nýjustu plötu sinnar “Pop Life”. Reynt hefur verið að fá David Guetta til Íslands í um eitt og hálft ár án árangurs og er það því mikill fengur að loks nú hafi náðst samningar um komu hans til landsins. Þeir sem séð hafa David Guetta á tónleikum segja að það sé lygasögu líkast hvað hann nær fólkinu með sér og sá andi sem skapist á uppákomum hans séu vanfundnar. David Guetta setur miklar kröfur varðandi ljós og hljóð og eru sýningar hans einstakt augna- og eyrnayndi.

Gus Gus koma fram í fyrsta sinn í langan tíma á Íslandi og verða tónleikar þeirra eitthvað það lang stærsta sem þau hafa farið út í hér á landi. Um er að ræða fullt sett og verða tekin mörg ný lög að væntanlegri plötu sem kemur út á haustmánuðum. Eins og Gus Gus aðdáendur vita leggur sveitin gríðarlega mikið upp úr besta mögulega hljóði og að sviðsmyndin sé til fyrirmyndar. Vegna þessa verður engu til sparað við að gera uppákomu Gus Gus þá allra flottustu sem sést hefur á tónleikum þeirra hingað til og hefur aldrei verið sett upp jafn mikið magn ljósa og hljóðs í Höllinni.

Miðasala er á midi.is, í verslunum Skífunnar og BT úti á landi.

Eftir stórtónleika David Guetta og Gus Gus í Laugardalshöllinni þann 16. júní, verður haldið veglegt eftirpartý fyrir tónleikagesti á vinsælasta skemmtistað landsins, Nasa. Aðgöngumiði í Laugardalshöllina gildir einnig sem aðgöngumiði í eftirpartýið en þeir sem að ekki hafa miða eiga þann kost að borga sig inn á Nasa fyrir 1500 kr.

Nokkrir af færustu plötusúðum landsins þeyta skífum langt fram eftir nóttu í eftirpartýinu á Nasa og hvetjum við flesta til að láta sjá sig. Húsið opnar klukkan 01.00.

-

Mælt er með að fólk mæti snemma. Húsið opnar rétt eftir sjö og verður your's truly að spila þarna ásamt Exos, Sindra BM, David Guetta, BB&Blake og Gus Gus.

Sjáumst!