NÝÁRSTJÚTT - BREAKBEAT.IS Á CAFÉ 22 Birt með góðsfúslegu leyfi breakbeat.is
***

FIMMTUDAGINN 10. JANÚAR KL 21:00 TIL 02:00

Breakbeat.is klúbburinn kemur árinu 2002 í gang með sinni mánaðarlegu jungle, drum & bass og breakbeat skemmtun á Café 22 [Laugavegi 22].

Við ætlum að gefa djömmurum borgarinnar tíma til að anda eftir hnykkinn um áramótin og verður samkoman haldið fimmtudagskvöldið 10. janúar, en EKKI fyrsta fimmudagsvköld mánaðarins eins og venjan er.

Fasta plötusnúðar Breakbeat.is eru DJ Addi, DJ Reynir og DJ Stinni. Aðgangseyrir er 300 krónur [500 krónur eftir 23:00] og lágmarks aldur fyrir inngöngu er 18 ár.
****
Nú er ekkert annað til fyrirstöðu en að mæta í kvöld og hrista bossann við Drum & Bass tóna þeirra breakbeat pilta.