Ghozt & Brunhein sameina krafta sína að nýju og taka yfir dansgólf Tunglsins næstkomandi föstudagskvöld. Þú skalt mæta og eiga von á blöndu af húsi og teknói af bestu gerð. Ekki láta góma þig með sultuhund í bólinu heldur kíktu við í flott partý föstudagskvöldið 30. maí þar sem dansinn dunar.

Húsið opnar á slaginu 23:00 og kostar einungis kr. 1000 inn. Ef þú vilt losna við að greiða aðgangseyrir skalt þú senda póst á clubtunglid@gmail.com eða flex@flex.is með nafni og kennitölu ef þú vilt komast á gestalista.

Tunglið, lengi lifi.