Hugarástandsbræðurnir Frímann og Arnar á skemmtistaðnum TUNGLINU 23. maí

Plötusnúðarnir Frímann og Arnar eru þekktir fyrir að hafa soðið saman einhver bestu klúbbakvöld sem landinn hefur upplifað, með þéttum og funky danstónum sem fengu alla til að dansa. Stemningin hjá drengjunum er alltaf eins og hún gerist best út í heimi, fullt dansgólf og eðal groove í gangi. Strákarnir náðu ótrúlega góðri formúlu í gang, Frímann úr hörðu (techno) deildinni og Arnar úr mjúku (house) deildinni.



Þegar þessir tveir heimar mætast verður til Hugarástand, blanda sem greinilega snar virkar, kraftmikil og seiðandi. Nú ætla drengirnir loksins að hrista fram úr ermum eitt slíkt eðal djamm á skemmtistaðnum TUNGLINU. Það er óhætt að segja að unnendur alvöru klúbbakvölda ættu ekki að láta þetta kvöld fram hjá sér fara.


Hugarástand á sér rætur að rekja alla leið til ársins 1998 og byrjaði sem útvarpsþáttur á útvarpsstöðinni Skratz og síðar á X-inu. Klúbbakvöld á skemmtistöðum fylgdu í kjölfarið og festu sig fljótt í sessi sem ein öflugustu klúbbakvöld fyrr og síðar. Frábær danstónlist og góð stemning einkenna kvöldin og það er einmitt það sem verður í boði þann 23. maí á TUNGLINU. Húsið opnar kl.23.00 og 1.000.- inn