Næstkomandi laugardagskvöld mun klúbbaþátturinn Flex flytja exclusive syrpu frá D. Ramirez á X-inu 97.7 milli 19 og 21. Hann mun einmitt koma fram á NASA þann 19. mars næstkomandi og er forsala hafin í Mohawks á laugavegi og http://midi.is/tonleikar/1/5064 - miðaverð 2.500.-

Næstkomandi fimmtudagskvöld mun konungur teknó á íslandi hann Addi Exos sjá um að kynna D. Ramirez fyrir hlustendum techno.is á Flass.

Kynnið ykkur D. Ramirez nánar á Flex.is og mætið í þriggja ára afmæli Flex Music sem fagnar ásamt Cult í Smirnoff. Þess má geta að hljóðkerfi staðarins verður aukið til muna og nýju lazerarnir frá Hljóð-X sem gerðu það gott á Sander verða á staðnum.