Sander Van Doorn í Flex á laugardagskvöldið Árslistakvöld Techno.is fram fer á NASA laugardagskvöldið 08. mars næstkomandi. Á því kvöldi kemur fram einn af heitari plötusnúðum veraldar um þessar mundir, Sander Van Doorn. Í tilefni af því mun hann spila í klúbbaþættinum Flex á X-inu 97.7 næstkomandi laugardagskvöld frá 19 til 21. Gefnir verða miðar á kvöldið og verður tekið viðtal við Sander í beinni útsendingu. Hægt er að hlusta í beinni á netinu á Flex.is

Miðasala fer fram í Jack & Jones, Kringlunni og kostar miðinn aðeins 2.000 krónur. Allar nánari upplýsingar um viðburðinn er inn á Techno.is