Ok…. ég veit ekki hver stendur fyrir þessu kvöldi en ég býst fastlega við því að Margeir hafa eitthvað um það að segja.

Þetta er í 6. skipti sem það er haldið þannig að það segir sig sjálft að fólk er almennt hrifið af þessu kvöldi og ég man eftir kvöldinu í fyrrra og það var brilliant.

Núna er það haldið á Kaupfélaginu og það er aðeins opið fyrir boðsmiðafólk. HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ !??!!?!

Þetta er kvöld sem ég er búinn að bíða eftir síðan ég gekk útaf Thomsen 26.des í fyrra og þegar loks kemur að því þá gerist eitthvað eins ömurlegt og þetta. Margeir missti alltof mikið af prikum hjá mér fyrir þessa ákvörðun sína og ég er farinn til bólivíu að rækta kaffibaunir !! ÉG ER FÚLL OG ÉG ÆTLA AÐ FARA Í FÚLLYNDISVERKFALL Í 2 VIKUR !!!!

Levy