helgin á Thomsen Helgin á Thomsen….sú næstsíðasta!!

Föstudagur

Efri hæð:
Dj. Nökkvi jr. snýr aftur eftir langt hlé en þessi ungi, stórskemmtilegi og jafnframt frábæri plötusnúður hefur undanfarin misseri lagt nálina á hilluna en nú í kvöld mun hann þeyta skífum á eftir hæð Thomsen.

Balli Funk a.k.a. the Coca-Cola kid mun klára kvöldið á efri hæðinni en þessi drengur hefur undanfarna mánuði spilað á Thomsen við góðan orðstír en þess má geta að Balli og Bjössi eru miklir vinir og finnst gaman að ræða um tónlistarstefnur Thomsen.

Kjallari:
Exos mun fagna í kvöld útkomu sinnar 3.breiðskífu en heitir einmitt My home is Sonic. Ingvi mun klára kvöldið í kjallaranum en hann er orðinn eitilharður strákurinn og á fullt erindi í harðbolta Íslands hann Exos.


Laugardagur
Efri hæð:
Útgáfupartý Dj Ben B og Total Kayoz Á thomsen. Djammið byrjar stundvíslega kl 22 og þeir sem fram koma eru:Twisted Minds, Forgotten Lores, Antlew/Maximum, Angel, Dj Rampage, Dj Ben B Dj total kayoz og fleiri.

Kjallari:
Bjössi og Ingvi gerðu allt vitlaust fyrir tveim vikum síðan er þeir spiluðu í 1. skipti saman í kjallara Thosmen og er það fyrir næsta víst að það mun allt vera 10 sinnum betra en seinast.

HOUSE-PROGRESSIVE-TECHNO