Forsalan á DAVE SPOON er hafin í Levi's, Kringlunni & Smáralind og Galleri 17, Keflavík & Akureyri.

Dave Spoon er eitt heitasta nafnið í danstónlistinni í dag og á nokkur lög sem hljóma í íslensku útvarpi. Það ættu flestir að kannast við aðal slagarann hans, “Bad girl, At Night” sem hefur verið að gera allt brjálað um allann heim. Dave Spoon spilar á NASA 1. febrúar og í SJALLANUM 2. febrúar ásamt Ghozt (Flex Music), JayArr (Fyrv. Plugg'd maður), Frigore úr Plugg'd, DJ Joey D & DJ Andra Ramirez.

Upphitun fyrir Dave Spoon
Upphitun fyrir Dave Spoon verður á laugardaginn 26. janúar á Tropical Klúbbnum við Gullinbrú þar sem þeir DJ A. Ramirez & JayArr fyrrverandi Plugg'd meðlimur munu spila. Að sjálfsögðu er þetta allt saman í boði Agent.is og er frítt inn. Við ætlum að gefa mixdiska fyrir þá fyrstu sem mæta þannig mættu snemma. Húsið opnar klukkan 23:00.

Miðaverðið í forsölu er aðeins litlar 2.000 krónur en það er bara á meðan byrgðir endast. Eftir það hækkar miðinn upp í 2.500 kall þannig ekki vera ekta íslendingur og vera á síðustu stundu, drífðu í þessu, trygðu þér miða.

Við höfum sett saman mixdisk sem inniheldur bara lög eftir Dave Spoon. Við erum að gefa þennan disk, þannig ef þú hefur áhuga á að fá mixdisk, hafðu þá samband og við komum honum til þín um leið. (agent@agent.is)