Dj FEX á Íslandi 14. Desember Barcode kynnir: Dj F.E.X. á Organ 14. Desember
Í Boði Hotel Plaza


Dj FEX, öðru nafni Farid Boudinar byrjaði feril sinn í litlum technoklúbbi (L’Ilnox) í Tours, Frakklandi árið 1994. Sama ár opnaði hann plötubúð og byrjaði með vikulegann útvarpsþátt á lítilli útvarpsstöð, þar sem hann spilaði nýútkomið efni í House og Techno geirunum

Árið 1998 færði hann sig um set til Parísar og varð fljótlega fastaplötusnúður í nokkrum stæstu og goðsagnakenndustu partíum Parísarborgar: « House of Legend », « Diskotek » « Club BPM » á heimsfræga næturklúbbnum L’enfer, svo og í « Scream » á L’Elysée Montmartre….

Fyrsta lagið sem hann gaf út (Indie Walk) gerði hann ásamt vini sínum Dj Phantom, en það var valið þemalag Frönsku Techno göngunnar árið 2002, lagið seldist í yfir 50 þúsund eintökum og var valið í um 50 mixtape og safndiska.

Þrátt fyrir auknar vinsældir náði ekkert að breyta stílnum hans, sem einkennist af House tónlist einhverstaðar á milli Minimal og Techno, þar sem hughrif og dulúð svífa yfir vötnum, hann leitar alltaf í orginalið í stað þess að fara ‘auðveldu leiðina’ ávallt reiðubúinn að taka áhættu bæði í dj-settum sínum og við lagasmíðar…
Kappinn hefur gefið út hjá virtum útgáfum: Serial, Brique Rouge, Hypnotic, Dessous, Visitor, Gourmet, Systematic, Dance Electric, Kling Klong, Great Stuff… ekki ónýt nöfn þar.

Robotronic, nýja útgáfufyrirtækið hans var stofnað árið 2005, það er eitt það besta í Frakklandi um þessar mundir, en það hefur gefið út lög og remix eftir Marc Romboy, Djinxx, Alexander Maier, FEX sjálfan og það má búast við að það bætist all hressilega við þennan lista í nánustu framtíð.

Dj FEX heldur áfram að spila á fartölvuna sína með hjálp Final Scratch kerfisins sem hann túrar með um allt Frakkland og heiminn um kring, í borgum eins og Bangkok ; Singapore ; Honk-Kong ; Shanghæ ;Istanbul ; Ibiza ; NYC ; Miami ; Gent ; London ; Berlin ; Munchen ; Genf ; St. Pétursborg ; Kiev og svo nú í Reykjavík.

Í dag er hann fastaplötusnúður í Kings partíunum sem slegið hafa í gegn á Mix Club í París, og hann var valinn til að mixa seinasta mixdisk sem klúbburinn gaf út, Mix Club vol. 3. Á þeim frækna klúbb hefur hann spilað með köppum eins og Sven Vath, John Acquaviva, Moby, Danny Howells, Marc Romboy, Paul Woolford…

Við í Barcode höfum fylgst með þessum gæðapilti um nokkurt skeið, eða frá því hann gaf út lagið Misterious Conversations á þýska hágæðalabelinu Dessous í apríl 2005, síðan hefur komið hvert gæðastykkið á fætur öðru og því ekki skrítið að þvílík eining hafi náðst um að flytja hann inn innan höfuðstöðva okkar. Að okkar mati er hann fullkominn kandídat í að kynna þá stefnu danstónlistar sem er okkur best að skapi.

Komdu og taktu þátt í gleðinni, hristum saman bossana umvafin músík í hæsta gæðaflokki, á skemmtistað í hæsta gæðaflokki.




Mixið hér að neðan hefur að geyma lög og remix eftir F.E.X.

http://www.dansspor.is/barcode/FEXtracks.mp3

tracklist:
1. Dj F.E.X. - Beautiful
2. Dj F.E.X. - No Problemo
3. Dj F.E.X. - Death or Glory
4. Dj Tim - No Better (Dj F.E.X. remix)
5. Dj F.E.X., Dj Prinz - Urbaniac
6. Dj F.E.X. - Remember
7. CPM - Iobec Maphic (Dj F.E.X. remix)
8. Dj F.E.X., Dj Prinz - With or Without
9. Tommy Four Seven - Smoke (Dj F.E.X. remix)
10. Dj F.E.X. - Misterious Conversations (Tanzman & Stefanik remix)
11. Dj F.E.X. - Acid Forever
12. Dj F.E.X. - Runway

www.myspace.com/barcodecollective
www.djfex.com
www.plaza.is