Þetta er ykkar síðasti séns til að fara á síðasta Breakbeat á þessu ári! En ég er svo latur að ég geri bara copy/paste af Breakbeat.is síðunni: (lagaði samt stafsetningarvilluna í skemmtunina…eða ég held það)

BREAKBEAT.IS Á THOMSEN
FIMMTUDAGINN 13. DESEMBER KL 21 TIL 01
Vegna breytinga á 22 tókst ekki að halda Breakbeat.is skemMtunina síðasta fimmtudag. En við komum sterkari til leiks á Thomsen. DJ Addi mætir eftir veikindi, DJ Kristinn mun hefja frumrauns sína sem fasta-plötusnúður Breakbeat.is og DJ Reynir er búinn að fá sent ógrinnin öll af nýju efni og lofar hörku setti. Aðgangseyrir er 300 kr. fyrir 23:00, en 500 kr. eftir þann tíma. Hljóðkerfið á Thomsen er með því besta sem gerist á landinu og bjórinn verður á góðu verði, því ætti enginn að láta þetta spes kvöld fram hjá sér fara.
Tjúttið hefst eftir 5 klukkutíma, Mættu !!!
www.eve.is