Techno.is kynnir Upphitun fyrir Dj Tiesto með Exos og Plugg'd á Yellow í Keflavík föstudaginn 2.nóvember og á Klúbbnum í Reykjavík laugardaginn 3. nóvember. Það verður haldin sérstök upphitunar helgi daganna 2. og 3. nóvember en það er helgin fyrir komu Dj Tiesto til Íslands. Það eru heitustu plötusnúðar Techno.is, þeir Exos og Plugg'd sem ætla sjá um að tæta og trylla dansgólfið á tveim vinsælum skemmtistöðum í Reykjavík og Keflavik þessa helgi. Á föstudeginum verður haldið til Keflavíkur þar sem skemmtannalífið blómstar um þessar mundir. Mun Techno.is í samstarfi við skemmtistaðinn Yellow halda heljarinnar dansveislu þar sem Exos og Plugg'd sjá um að hita fólk heldur betur upp fyrir það sem koma skal.


Leikurinn verður svo endurtekinn daginn eftir, laugardagskvöldið 3. nóvember á Klúbbnum upp á Höfða. Þar munu Exos og Plugg'd aftur koma saman og standa fyrir massívri klúbbakeyrslu langt fram á rauða nótt. Allt er þetta gert til að koma ykkur í gírinn fyrir stærsta kvöld ársins 2007. Þá fer fram árshátíð Techno.is 9. nóvember á Broadway þar sem frægasta nafnið í danstónlistinni kemur til Íslands í fyrsta sinn en það er enginn annar en Dj Tiesto sjálfur.

Exos og Plugg'd hafa haft í miklu að snúast um þessar mundir þar sem Techno.is hefur verið á mikilli siglingu með komu plötusnúða til landsins á borð við Chris Lake og Dirty South. Plugg'd eru nú að gera sig klára fyrir að spila erlendis í fyrsta sinn en þeir eru að spila helgina 26. og 27. október í Svíþjóð á risastórum skemmtistöðum ásamt þvi að vera í dagspilun í sænsku útvarpi.