Árshátið Techno.is : DJ TIESTÓ. Techno.is kynnir Dj Tiesto á Árshátíð Techno.is þann 9. nóvember næstkomandi.
Dj Tiesto er án nokkurs vafa þekktasti og af mörgum talinn besti plötusnúður heims. Tiesto heitir réttu nafni Tijs Verwest og er fæddur og búsettur í Hollandi. Hann er líklega farsælasti tónlistamaður Hollands með óteljandi viðurkenningar og afrek á ferlinum. Hann var t.d. fyrsti plötusnúður veraldar til að selja fleiri en 25.000 miða á einu og sömu tónleikunum og gerði það tvö kvöld í röð! Síðan þá hefur hann spilað marg oft á smekk fullum leikvöngum og spilað á öllum stæðstu tónlistarhátíðum heims, nú síðast á Hróaskeldu hátíðinni. Hann er einn af þeim mönnum sem hafa stýrt dans senunni í Evrópu og hefur gert það með gífurlegri plötu sölu ásamt því að vera þekktur fyrir einstaka og ólýsanlega stemningu á tónleikum.


Árið 2004 var án nokkurs vafa stæðsta ár Tiesto til þessa. Þá gaf hann út plötuna ‘Just Be’ og var hún yfirfull af stórslögurum eins og ‘Forever Today’, ‘Love Comes again’, ‘Traffic’, ‘A tear in the open’, titillagið ‘Just Be’ og síðast en ekki síst ‘Adiego for strings’. ‘Traffic’ var fyrsta lagið í 23 ár til að ná toppsætinu í Hollandi án þess að sungið væri í laginu. Á svipuðu leiti var hann búinn að gefa út remixið sitt af ‘Delerium’ laginu ‘Silence’. En það varð fyrsta house lagið til að vera spilað í dagtíma útvarpi í Bandaríkjunum. Árið 2004 hélt áfram að vera farsælt fyrir Tiesto þegar hann hélt tvo risa tónleika í Gelredome í heimabæ sínum Arnheim sem er í klukkutíma fjarlægð frá Amsterdam. U.þ.b. 50.000 manns lögðu leið sína á tónleikana sem er að sögn Tiesto, einu allra skemmtilegustu sem hann hefur komið fram á. 3 klukkustunda syrpan hans var yfirnáttúruleg og náðust herlegheitin öllsömul á upptöku. DVD diskurinn ‘Dj Tiesto in Consert’ var seldur í bílförmum. Árið átti aðeins eftir að verða betra því seinna kom hann framm á hans allra stæðstu tónleikum ef tónleika mætti kalla. Opnunarhátíð Ólimpíuleikana í Aþenu var smíðuð í kringum hann og sýndi hann þar og sannaði fyrir framan milljarða manns, að hann er vinsælasti, farsælasti og líklega besti plötusnúður allra tíma. Ólimpíu atriðið hans var hljóðritað og selt á geislaplötu sem fékk nafnið ‘Parade of the Athletes’. Árið 2004 færði hann okkur 2 stórar plötur enda ekki komið út breiðskífa síðan árið 2001, þegar hann gaf út hina stórkostlegu ‘In my memory’ plötu.

Árið 2006 var einnig gott ár fyrir Tiesto. Þá gaf hann út meðal annars ‘In search of sunrice 5’ sem var líklega hans besta mixtape til þessa. Hann kom framm sem óvæntur leynigestur á Sensation hátíðinni í Amsterdam þar sem um 50 þúsund manns gjörsamlega trylltust þegar hann frumflutti lagið ‘Dance 4 life’ sem hann gerði ásamt Maxi Jazz úr Faithless. ‘Dance 4 life’ er verkefni sem Tiesto var valin til að verða sendiherra og andlit fyrir. ‘Dance 4 life’ eru góðgerðasamtök sem berjast gegn eyðni um heim allan og er alltaf gott að sjá þegar heimsfrægir tónlistamenn gefa tíma og vinnu í góðgerðarmál.
Á sama ári bað Disney hann um að remixa titil lag ‘Pirates of the Carabiean’ myndanna, ‘He´s a pirate’. Sem endaði sem eitt allra vinsælasta trance lag ársins 2006.

Árið 2007 byrjaði með svaka hvelli. Tiesto lagði leið sína til suður Ameríku þar sem hann hélt líklega stærstu sóló dans tónleika heims. Þar kom hann fram fyrir framan rúmlega 200.000 manns á Ipena ströndini í Brasilíu. Tiesto gaf nú fyrir stuttu út plötuna ‘Elements of life’ sem selst hefur gríðarlega vel útum allan heim.

Það er því án nokkurs vafa að árshátíð Techno.is verður flottasta dans veisla sem Ísland hefur séð. Ásamt Tiesto koma fram plötusnúðar Techno.is og þar á meðal EXOS, PLUGGD og Dj EYVI. Techno.is hefur hingað til verið með allra flottustu dans atburði á Íslandi og má þar telja upp: Sander Kleinenberg, Fedde Le Grand, Pendulum og nú næst Chris Lake. En það er nokkuð ljóst að nú á að slá öll met með því að flytja inn flottasta plötusnúð veraldar DJ TIESTO.
Dj Tiesto er þekktur fyrir að vera með eitt flottasta atriði sem þekkist í tónlistarheiminum og verður því ljósa og hlóðkerfi á heimsmælikvarða sem mun príða árshátíð Techno.is þann 9. Nóvember næstkomandi.

Hægt er að hlusta á Tiesto í hverri viku á Radio 538 í Hollandi þar sem hann er með stærsta útvarpsþátt Hollands. ‘Club Life’ þátturinn er á dagskrá öll föstudagskvöld milli 20-22 á íslenskum tíma.

Fylgist með á www.Techno.is og hlustið á útvarpsþáttinn Techno.is öll fimmtudagskvöld milli 22-01 á FLASS 104,5.

Forsalan hefst 18.október í AllSaints Kringlunni og kostar 4.990.