Ghozt & Brunhein þeyta skífur á Airwaves Það verða resident plötusnúðar Flex Music sem munu þeyta skífur á Iceland Airwaves hátíðinni sem hefst þann 17. október næstkomandi. Verða þeir við öll völd á skemmtistaðnum Barnum við laugaveg á föstudagskvöldinu og hefja þeir leik rétt um klukkan fjögur leytið þegar hátíðin stendur sem hæst. Þess má geta að á Barnum verður upplýsingaveita Airwaves hátíðarinnar.

Aðrir plötusnúðar sem koma fram eru meðal annars Asli, Óli Ofur, Kalli, Ewok, President Bongo, Thor, Ingvi, Margeir (aka Jack Schit) og Leopóld. Smelltu hér (http://www.icelandairwaves.com/artists.asp?festivalID=3&pageID=18) til þess að sjá hvaða tónlistarmenn og plötusnúðar koma fram á hátíðinni.

Búið er að raða niður staðsetningu og tíma á alla sem spila á hátíðinni.