Frumskógar harðneskja á Café 22 fimmtudagskvöld. Síðasta Breakbeat.is kvöld ársins verður haldið á Café 22 annaðkvöld [Fimmtudaginn 6. des]. Þar mun DJ Kristinn hefja frumraun sína sem fasta-plötusnúður Breakbeat.is…en gömlu jungle hundarnir DJ Reynir og DJ Addi verða ekki langt undan.

Stefnt er að því að flytja þónokkuð af nýju efni, meðal annars frá Valve Recordings, Cylon, Technical Itch, 31 Records, Outbreak, Hospital, Moving Shadow ofl…

Samkoman hefst klukkan 21:00 og stendur hún til klukkan 01:00. Og ættu skólagangandi ungmenni í Reykjavík og nágreni ekki að láta próflestur aftra komu sinnar á elsta og þéttasta klúbbakvöld borgarinnar. Aðgangseyrir er að vanda 300 krónur fyrir klukkan 23:00 en 500 krónur eftir það.