Ghozt & Brunhein á Barnum í pre-party fyrir Global Gathering þann 21. júlí (Flex Music) Nú þegar styttist í Global ferð Flex bræðra hefur verið ákveðið að slá til heljarinnar dansveislu á Barnum við laugaveg næstkomandi laguardagskvöld þann 21. júlí. Frítt inn og tilboð á Barnum meðan birgðir endast!

Mæting er snemma fyrir þá sem koma með í ferðina þar sem upplýsingum um ferðina verður komið áleiðis. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi ferðina þá er mögulegt að senda póst á flex@flex.is

Ghozt & Brunhein frá Flex Music ætla að hita upp fyrir Global með eðal klúbbatónlist á neðri hæð staðarins og er því von á eitruðum tónum þeirra bræðra fram eftir nóttu.

Húsið opnar kl 23:00 og er eins og áður sagði frítt inn.

-

Minnum á Alex Anderson um verslunarmannahelgina á Akureyri og í Reykjavík! Nánari upplýsingar eru á Flex.is