TECHNO.IS kynnir hvítasunnu Partý með EXOS & PLUGG'D


Techno.is kynnir séríslenskt klúbbakvöld um hvítasunnuna með tveim af ferskustu nöfnunum í íslenku danssenunni, þeim Exos og Plugg'd.

Exos er maðurinn á bakvið útvarpsþáttinn Techno.is og Techno.is kvöldin sem hafa verið í mikilli uppsveiflu á árinu þar sem nöfn eins og Fedde Le Grand, Pendulum og Sander Kleinenberg hafa komið fram.
Plugg'd samanstendur af þremur plötusnúðum og tónlistarmönnum, Tweak, JayArr og Frigore. Þeir eru allir fastaplötusnúðar hjá Techno.is og hafa gert hvern smellinn af fætur öðrum vinsælli með endurhljóðblöndunum t.d. Martin Solveig - Something better (Bootleg mix) og Kokaloga með Dr Mista og Mr. Handsome (Plugg'd Remix) sem var kosið lag ársins í techno.is fyrir árið 2006. Heimasíða Plugg'd verður tilbúin 27.maí.

Ekki missa af ótrúlegri dansveislu sunnudaginn 27.maí á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll um hvítasunnuna.
Húsið opnar kl 23.00 og lokar ekki sekúntu seinna en 05.30. Það er Bacardi breezer sem býður upp á léttar veitingar á meðan byrgðir endast, einnig verða gefnir mixdiskar frá strákunum í Plugg'd fyrir 100 fyrstu gestina. Forsalan er hafinn í Allsaints í Kringlunni og kostar aðeins 1000 krónur.

www.techno.is
www.myspace.com/pluggdcrew


EXOS

Dj Exos eða öðru nafni Arnviður Snorrason er tónlistarmaður og plötusnúður sem hefur verið iðinn við að halda raftónleika og danstónlistarkvöld í Reykjavík. Hann hefur gefið út 13 smáskífur og 3 breiðskífur ásamt því að hafa gert endurhljóðblandanir fyrir menn eins og Ben Sims, Mark Brom og Pascal Feos.
Exos byrjaði að koma fram sem plötusnúður aðeins 12 ára gamall en þá vaknaði áhugi hans á danstónlist eftir að hafa uppgötvað oldschool hardcore. Fljótlega varð áhugasvið kappans fjölbreyttara því House og Techno fönguðu athygli hans og 15 ára gamall byrjaði Exos að búa til tónlistina sjálfa. Exos kynntist Thorhalli Skúlasyni á þessum tíma sem var mikill brautryðjandi í íslensku danstónlistarlífi. Gaf Exos sína fyrstu plötu út á Thule records aðeins 17 ára gamall. Stuttu seinna komst hann í samband við Force Inc í Þýskalandi, virta plötuútgáfu sem hafði gefið út nöfn á borð við Alec Empire, Ian Pooley , Baby Ford og Akufen. Þar gaf Exos út sínar fyrstu tvær breiðskífur.
Seinni breiðskífan bar nafnið Strenght og fékk ótrúlega góðar viðtökur í íslenskum fjölmiðlum.
Árið 2001 kom út platan “My home is sonic” á útgáfunni Ae recordings. Platan hlaut titilinn “Besta íslenska plata síðasta árs” árið 2001 af einum helsta tónlistagagnrínanda Morgunblaðsins, Arnari Eggert Thoroddsyni.
Plötunni var lýst á eftirfarandi hátt : Exos tekur af allan vafa um hver sé fremsti raftónlistarmaður Íslands í dag með snilldarverkinu My Home is Sonic.
Exos fylgdi útgáfum sínum eftir erlendis og spilaði þá á klúbbum eins og Badofar í París, Paradiso í Amsterdam, Tresor í Berlín og var tíður gestur á hinum ýmsu stöðum í Evrópu. Exos komst þá í kynni við æðstaprest harðkjarna technostefnunnar, Dj Rush sem endurhljóðblandaði fyrstu útgáfu hans á Do not sleep plötuútgáfunni.
Í kjölfari þess var heimasíðan Techno.is stofnuð ásamt útvarpsþættinum Techno.is þar sem Exos sér um gang mála.



PLUGG'D / DJ TWEAK


Dj Tweak öðru nafni Bjarki Hallbergsson (25 ára) hefur veriðað spila á flestum skemmtistöðum Reykjavíkur síðan hann var 18 ára gamall. Tónlist hefur alltaf verið stór partur af lífi Tweak enda fæddist hann inní mikla tónlistarfjöldskyldu.
Tweak hóf nám í Bretlandi árið 2004 þar sem hann lærði audio engineering. Á meðan námi stóð fékk hann inn sem fasta plötusnúður á vinsælum klúbb í Manchestersem sem kallast Papparazzi.
Tweak hefur spilað á flest öllum heitu börum og skemmtistöðum Reykjavíkurborgar og má þar nefna Pravda, Hverfisbarinn, Hressó, Rex, Nasa og Broadway. Hefur hann einnig komið fram á klúbbakvöldumfyrir Techno.is, Pacha, Ministry of Sound og Hed Kandi þar sem hann hefur hitað upp fyrir stjörnur, stóar sem smáar t.d Lisa Loud, Wally Lopez, Scooter, Jon Johnson, Kathy Brown, Valentino Kansiani, Fedde Le Grand og Pendulum.
Árið 2006 byrjaði Tweak að semja tónlist með vinum sínum Jayarr og Frigore og stofnuðu þeir saman ‘dj/production team’ sem kallast Plugg´d. Á þeim stutta tíma sem þeir hafa unnið saman hafa þeir samið mörg lög og remixað t.d. lagið“Kokaloka” með Dr. Mister & Mister handsome með miklum og góðum undirtektum. Einnig hafa þeir gert bootleg með lögum eftir Páll Óskar, Martin Solveg, The Prodigy og Olive. Tweak er einn reyndasti plötusnúður landsins og hefur sýnt það og sannað margsinnis. Hann er sannarlega rísandi stjarna innan danstónlistargeirans.


PLUGG'D / FRIGORE


Friðrik Fannar Thorlacius eða Dj Frigore er 22 ára plötusnúður / producer. Frigore kemur frá stórri tónlistar unnendar fjölskyldu og vaknaði tónlistaráhugi hans á unga aldri. Hvert hljóðfæri var eins og leikfang í hans augum því að hann gat nánast spilað á hvaða hljóðfæri sem er eftir eyranu án þess að hafa þó lært nokkurn skapaðan hlut í tónfræði.
12 ára komst hann með hendurnar í sequencer sem kallast “Fruity loops” og Audio Editorinn “Cool edit pro”. Lærði að klippa og “sampla” og vann hann nánast alla sína tónlist á þessi forrit í tæp 4 ár. 15 ára setti hann saman hip hop / r'n'b hljómsveitina “Igore” (en þaðan kemur nafnið hans Frigore) en sú sveit vann rímnaflæðis keppni Skjás eins á Ingólfstorgi. Fyrir utan það var sveitin með tvö af topp 10 vinsælustu lögum á fm957 og þrenn tónlistarmyndbönd sem eru án efa ein mestu spiluðustu tónlistarmyndbönd okkar tíma. Annað myndbandið hafnaði í fyrsta sæti yfir vinsælustu tónlistarmyndböndin á Popp Tíví, og er þetta myndband enn í spilun af og til í dag. Sveitin fékk síðan plötusamning hjá skífunni og gáfu út plötuna “9 líf” sem Frigore sá um allar útfærslur og masteringu á.
4 árum seinna hætti hann og fór að snúa sér að örðum hlutum en skildi eftir sig góðar minningar, reynslu og þekkingu. 20 ára gamall tók Frigore upp á því að láta tónlistar þekkingu sína blómstra enn meira með því að gerast plötusnúður á skemmtistaðnum “Gaukur á stöng” og spilaði þar í tæp 2 ár með svo virkilega góðum undirtektum að Frigore er orðinn einn af vinsælustu plötusnúðum Reykjavíkur. Hann hefur spilað nánast allar helgar síðan, á öllum heitustu skemmtistöðum bæjarins eins og: Pravda, Hressó, Hverfis, Cafe Paris, Barnum, Glaumbar, Sólon og um nánast allt land.
Árið 2006 byrjaði Frigore að spila electro tónlist með strákunum í Plugg'd. Þeir hafa verið að hita upp fyrir plötusnúða eins og Dj Lucca, Sander Kleinenberg, Valentino Kanzyani, Fedde le Grand og Pendulum.
Strákunum í Plugg'd hafa tekist að hífa íslensku danssenuna upp á hærra plan með lagi eins og “Kokaloka” remixinu, sem var einmitt í toppsæti árslista Techno.is árið 2006. Einnig hafa þeir gert remix með Páli Óskari og Bootleg af Prodigy og Martin Solveig. Frigore starfar í dag sem ‘full time’ plötusnúður, tæknimaður og sér um alla framleiðslu á útvarpsstöðinni Flass 104,5 sem og að vera rödd stöðvarinnar.


PLUGG'D / JAY ARR


JayArr (Jakob Reynir Jakobsson) er 25 ára gamall DJ/Producer sem hefur verið viðriðin íslensku DJ senuna frá 18 ára aldri. Hann byrjaði að semja tónlist aðeins 8 ára gamall og var þá aðallega í Oldschool Hardcore. Þegar hann varð 16 ára var hann í Hip-Hop sveit sem hét Kritikal Mazz og gaf út með henni plötuna Dark Omen hjá Smekkleysu. Hann byrjaði sinn ferill sem DJ á Nelly's café, þar sem hann spilaði í 2 ár.
Þaðan lá leiðin á hinn alræmda Café Gróf þar sem hann spilaði í rúmt ár ásamt Kidda Ghozt og setti sig í sess sem ein af fremstu dansplötusnúðum landsins. JayArr hefur spilað á helstu stöðum bæjarins eins og: Thomsen, Flauel, Hverfisbarnum, Sólon, John Doe, Tunglinu, Casablanca ofl.
Árið 2006 byrjaði JayArr að spila Electro tónlist með strákunum í Plugg'd. Þeir hafa verið að hita upp fyrir plötusnúða eins og Dj Lucca, Sander Kleinenberg og Valentino Kanzyani. Og munu á næstunni hita upp fyrir Fedde le Grand og Pendulum. Strákunum í Plugg'd hafa tekist að hífa íslensku danssenuna upp á hærra plan með lagi eins og “Kokaloka” remixinu, sem var einmitt í toppsæti árslista Techno.is árið 2006. Einnig hafa þeir gert remix með Páli Óskari, Prodigy og Martin Solveig.
Jayarr hefur einnig unnið sem útvarpsmaður á helstu útvarpsstöðvum landsins eins og Kissfm, Fm957 og er nú starfandi á Flass 104.5.