Techno.is kynnir einn færasta plötusnúð og danstónlistarhöfund heimsinns í dag en hér er á ferðinni Sander Kleinenberg.
Sander mun spila á Broadway, stærsta skemmtistað Íslands en þetta fer allt fram föstudaginn 9.febrúar. Með Sander koma fram Exos og Dj Eyvi.
Sander Kleinenberg mun einnig koma fram með sérstaka dvdj sýningu sem hann stjórnar á meðan hann spilar. Sander er búinn að vera eitt heitasta nafnið í danstónlistinni og nú sérstaklega undanfarið eftir að hafa gefið út lög eins og “The Fruit” og “This is Miami”.
Dvd sýningin hjá Sander birtist á heilum 5 risaskjáum á Broadway en hann mun koma fram með 2 dvdj spilara, 3 plötuspilara og 3 geislaspilara.

Ekki missa af einum vinsælasta plötusnúð heimsins í dag á Broadway föstudaginn 9. febrúar.
Forsalan fer fram í Gallabuxnabúðinni í Kringlunni í Reykjavík og í Centró á Akureyri.

Heppnir hlustendur útvarpsþáttarins TECHNO.IS geta unnið miða á þennan merka atburð en þátturinn er á fimtudagskvöldum milli 22. til 00 á flass 104,5.

TECHNO.IS