Er thetta malid, mun lidid rokka a akureyri n.k helgi ?

Hvad hefur thu um malid ad segja ?


=
Frettatylkinning:
Element 01
-Danshátíð á Akureyri um Verslunarmannahelgina

Til hvers að láta mestu partý helgi fara fram hjá sér í einhverjum sveitaballspolka? Um Verslunarmannahelgina 3.-6. ágúst, stendur framvkæmdarhópurinn Núna fyrir danshátíð á Akureyri undir heitinu Element 01. Hópurinn samanstendur af einstaklingum sem hafa staðið fyrir fjölda klúbba-kvölda og tónleika undanfarin ár (m.a. undir merkjum Rými, Skýjum ofar, Breakbeat.is og Atóm) og er ætlunin að bjóða upp á öfluga og fjölbreytta dagskrá á næturklúbbinum Madhouse í Hafnarstræti (Göngugötunni) Akureyri alla helgina.
Það er engin spurning að mikið líf verður í Akureyri um verslunarmannahelgina þar sem skemmtidagskrá er haldið uppi undir heitinu Ein með öllu [http://www.fremri.is/einmollu/Forsida.htm]. Element 01 er þó með öllu ótengd þeirri hátíð, þó nokkrir plötusnúðar á okkar vegum muni eitthvað troða upp á Ráðhústorgi yfir helgina. Meðal þeirra sem spila á Element 01 eru DJ Panik (Movement - UK), Exos (Thule/Force Inc), DJ Reynir (Electroncia Radio X) og DJ Margeir (Thomsen/Sweet Beat). Helgarpassi á Element 01 kostar aðeins 2.500 krónur og veitir forgang í röð. Miðaverð á hvert einstakt kvöld er 1.000 krónur. Aldurstakmarkið er 18 ár. Frekari upplýsingar má fá á element@breakbeat.is.
=