Dansa meira: á Vegamótum 11. júní Party Zone, Bacardi og Rás 2 kynna:
Partý röðina “Dansa Meira”

-á Vegamótum 11. júní

DJ´s : Margeir, Árni E og erlendur leynigestur.

Útgáfa geisladisksins “Partyröðin Dansa Meira 2005”

Dansþáttur þjóðarinnar, Party Zone, ætlar að starta röð af partýum sem þátturinn hyggst halda í samvinnu við Bacardi í sumar. Ákvörðun hefur verið tekin að færa PZ kvöldin inn á minni staðina og búa til þétt og svöl partý á völdum danskaffihúsum hér á landi.

Fyrsta partý-ið verður haldið á Vegamótum á laugardagskvöldið (11.júní). Húsið opnar um 23 og stendur gleðin yfir fram til morguns. Markmiðið hjá öllum á staðnum verður að dansa meira. Það verða engir smá plötusnúðar að sjá um að marmiðið náist, þeir Margeir, Árni E og erlendur leynigestur.

Það má búast við alveg eðal partýi enda sumarið loksins komið og þeir sem muna eftir sumar partýinu okkar á Vegamótum fyrir 2 árum láta sig eflaust ekki vanta enda var það eitt geggjaðasta partýi á staðnum fyrr og síðar.

Geisladiskur “Dansa Meira” kvöldanna kemur út þetta sama kvöld og verður dreift til gesta. Það eru Bacardi menn sem styrkja útgáfu disksins af myndugleik. Margeir setur hann saman og er tónlistinn í anda þáttarins þetta sumarið. Einkunnarorðin eru og verða í sumar: Edge, attitude og partý.

Það er ekki úr vegi að gefa eintök af PZ disk á þessu kvöldi enda eru nú rúm 10 ár frá því að fyrsti Party Zone diskurinn kom út, en það var snemma árs 1995.

Að sjálfsögðu verður diskurinn í boði meðan birgðir endast og því borgar sig að mæta í fyrra fallinu. Einnig munum við reyna að gefa nokkur eintök í þættinum fyrr um kvöldið til þess að gefa þeim sem eru utan höfuðborgarsvæðisins tækifæri á að næla sér í eintak af disknum.

Markmiðið með þessum kvöldum í sumar er auðvitað að keyra upp alvöru partý á danskaffihúsum landsins og hafa smá gaman af þessu. Það verða plötunsnúðar við spilarana sem vita hvað þeir eru að gera og tónlistarlega verða þeir í anda þáttarins eins hann er hefur verið undanfarna mánuði. Framkalla á gott partý og styrktaraðili kvöldsins sér til þess að það sé til nóg að súpa handa öllum og hjálpar okkur að koma út þessum veglega disk kvöldanna.

Næsta kvöld er síðan fyrirhugað á Akureyri fyrstu helgina í júlí.

Ekki missa af endurkomu Party Zone á Vegamót. Mætið snemma til að forðast röð!!! Síðast var röð niður á laugarveg!!!!

Vegamót opna fyrir gesti kl 23:00.

Upphitun í þættinum um kvöldið.

Nánar:

www.pz.is
www.margeir.com