Árslistakvöld Party Zone ! Bacardi Breezer kynnir:

Árslistakvöld Party Zone 2005 á NASA laugardagskvöldið 29.janúar
kl 23:00 - ????



Árslistakvöldið verður ekki af verri endanum þetta árið, risakvöld á mælikvarða danssenunnar. Læn uppið er eftirfarandi: http://www.gusgus.com (live), þýsku ofurnýstirnin í Tiefschwarts og einn flottasti snúður landsins “The Don” Grétar G. Algjörlega skothelst og ferskt kvöld í uppsiglingu. Tilefnið er eins og ávallt árslisti www.pz.is sem kynntur er fyrr um kvöldið á Rás 2.

Forsala hefst í Þrumunni og Tólf tónum fimmtudaginn 20.janúar. Miðaverði er stillt í hóf og er 1.500 kr í forsölu og 2.000 kr um kvöldið. Tryggið ykkur forsölumiða í tíma og takið þátt í fyrsta stóra kvöldi danssenunnar árið 2005!!