Tekið af pz.is


ALL TIME TOP 40 listinn uppfærður og endurtekinn !!!

Það er komið að því. Að endurtaka kvöldið sem heppnaðist svo vel í fyrra. Árshátíð Plötusnúðanna 2004 verður haldin helgina 12.-13.nóvember.
Þar sem þetta kvöld gjörsamlega sprengdi allt undan sér í fyrra hefur verið ákveðið að tvískipta hátíðinni. Stórt klúbbakvöld með nokkrum af okkar þekktustu plötusnúðum verður haldið á Nasa föstudagskvöldið 12.nóvember og síðan verður partý snúðanna sjálfra haldið á Bar Bianco kvöldið eftir. Fyrr það sama kvöld verður kynntur ALL TIME TOP 40 í Party Zone sem byggður er á vali plötusnúða landsins.

Öllum hlustendum og plötusnúðum er boðið til veislunar með einum eða öðrum hætti. Þeir sem taka þátt í vali listans t.d. fá boðsmiða á partýið á Bar Bianco en það partý verður eingöngu fyrir boðsgesti. Læn upp og nánari upplýsingar um kvöldið verða í þættinum og hér á vefnum á næstunni. ”