Partý 3 á Föstudagskvöldið. Næstkomandi föstudagskvöld munu þeir DJ Pétur “pressa” , DJ Bjössi “brunahani” og DJ Sveinbjörn “sverðagleypir” rokka feitt á thomsen.
Partý 3 er eins og nafnið gefur til kynna þriðja kvöldið sem þeir kappar Bjössi og Sveinbjörn hafa staðið fyrir.
Þeir munu spila pumpandi house tónlist og þétta techno tónlist undir morguninn.
Ég lofa ykkur þéttri sveiflu frá strákunum svo það er um að gera og mæta snemma á svæðið.

Innan tíðar opnar síða (www.reykjavik.com/party3) þar sem allar helstu upplýsingarnar verða.

Kvöldið er í boði Battery og reykjavik.com

dadaradadaaa :P