Sasha á NASA sunnudaginn 1. ágúst! Dansþáttur þjóðarinnar, PARTY ZONE og ÞRUMAN í samvinnu við BECKS kynna:

Konung bresku plötusnúðanna.
Taka 2

SASHA (Global Underground)
+ “The Don” GRÉTAR G (Toybox)

á NASA sunnudagskvöldið 1.ágúst 2004.

Forsala aðgöngumiða er í Þrumunni laugarvegi 69. Það verða einungis 900 miðar til sölu og hefur miðaverði verið stillt í hóf þar sem hann er að bæta upp fyrir fjarveru sína í vor. Miðaverð er einungis 1500 kr í forsölu og 1900 kr í hurð. Handhafar Svarta kortsins fá sértilboð sem verður auglýst síðar.

Ljósakerfi og hljóðkerfi Nasa verður sérstaklega sett upp með það fyrir augum að trylla líðinn. Það ætti að vera tilvalið að enda verslunarmannahelgina á einu af stóru klúbbakvöldum ársins.

Stiklað á mjög stóru um Sasha.

Wales verjinn Sasha hefur fyrir löngu skipað sér sess meðal stærstu nafna danstónlistarinnar og þá aðallega sem plötusnúður þó svo að hann hafi lika getið sér mjög gott orð sem endurhljóðblandari og tónlistarmaður. Áhugasömum er bent á að kíkja inná heimasíðuna hans www.djsasha.com Þar er að finna biography, útgáfulista ásamt upplýsingar um staði sem hann hefur spilað á ásamt myndasafni.

Hann sló fyrst í gegn sem plötusnúður í lok níunda áratugarins sem “resident” plötusnúður á Shelly´s en þar spilaði hann ameríska hústónlist sem var þá að ryðja sér til rúms á klúbbum Bretlands. Hann varð fyrst landsþekktur og jafnvel heimsþekktur þegar hann varð plötusnúður á hinum mjög svo fræga og mikið auglýsta Renaissance. Safndiskur með DJ mixi frá honum undir merkjum Renaissance kom honum svo endanlega í hóp þekktustu plötusnúða heims. Á árunun 1993-1997 varð til plötusnúða dúó úr Sasha og John Digweed og saman gerðu þeir endurhljóðblandanir voru gríðarlega vel heppnaðar. Þeir ferðuðust um allan heim og spiluðu grimmt bæði á stærstu klúbbum heims sem og á stóru tónlistarhátíðunum sem voru í gangi á þeim tíma. Þeir gáfu út Northern Exposure sem geymdi þeirra efni og re-mix frá þeim. Hann hefur remixað listamenn eins og M-People, Pet Shop Boys, Simply Red, Madonnu og Gus Gus. Einnig gerði hann eigið efni fyrir DeConstruction. Í seinni tíð hefur hann gefið út safndiska undir merkjum Global Underground og gefið út EP plötuna Xpander sem varð klúbbahittari 1999. Í samvinnu með Darren Emerson úr Underworld kom súperhittarinn Scorchio sumarið 2000. Í fyrra kom svo þótt ótrúlegt megi virðast fyrsta eiginlega breiðskífan frá Sasha, hin afar vel heppnaða AirDrawn Dagger. Hann heldur alltaf mestri tryggð við plötusnúða starfið og er það ástæða þess að hann hefur ekki farið af TOPP 3 á lista DJ Magazine yfir plötusnúða heims frá því að listinn var fyrst birtur fyrir 7 árum síðan.

Í júnímánuði kom út ný frábær remix safnplata frá Sasha sem ber heitið Involver og er kappinn að kynna hana sérstaklega þessa dagana.

Dansþáttur þjóðarinnar heldur áfram að setja upp kvöld á Nasa í samvinnu við Plötuverslunina Þrumuna og Becks. Fyrst var það afmælishátíðin sem skartaði Layo & Bushwacka síðan, Misstress Barbara nú um páskana. Í júní síðastliðnum var svo hið magnaða kvöld með John Digweed Þetta samstarf hefur gengið mjög vel nú á síðustu mánuðum. Grétar úr Þrumunni og Party Zone hafa náttúrulega unnið saman með ýmsum hætti í gegnum árin. Fyrsta kvöldið sem Þruman og Party Zone héldu saman var hið magnaða kvöld með Timo Maas á Gauk á Stöng haustið 2001. Party Zone hefur nú haldið party undir nafni þáttarins í rúmlega áratug og hafa tugir erlendra listamanna og snúða spilað á þeim kvöldum. Mörg þeirra ógleymanleg en að fara yfir það er náttúrulega efni í heila grein. Það má benda á vefsíðu þáttarins www.pz.is fyrir þá sem vilja fylgjast með þættinum og starfssemi hans.

En við sjáumst á vonandi mögnuðu Sasha kvöldi á Nasa þann 1.ágúst þegar hann loksins tryllir alla þá sem mættu þann 19.maí og alla hina sem vilja berja goðið augum. Ekki má svo gleyma sjálfum “The Don” Grétari en hann hefur farið gjörsamlega hamförum á síðustu kvöldum þegar hann hefur hitað upp fyrir stórstjörnurnar.


Ps: Fylgist vel með Party Zone þættinum á Rás 2 næstu laugardagskvöld og á vefsíðu þáttarins og styrktaraðila.

Over and Out!

www.pz.is