Ed Rush og Baron á Rewind kvöld Breakbeat.is Ed Rush kom sér í samband við DJ Reyni í morgun eftir að hafa lent á Keflarvíkurflugvelli ásamt félaga sínum Baron vegna vélabilunar í vél British Airways á leið til Baltimore. Þeir Ed Rush og Baron eru að fara spila í Washington D.C. um komandi helgi og fljúga þeir vestur með Icelandair á föstudagsmorgun.

Baron þessi er ungur pródúsant og plötusnúður sem að hefur verið að gefa út á plötuútgáfu Ed Rush og Opticals; Vírus

Ed Rush spilaði hér á landi snemma árs 1997 á elf19 kvöldi á skemmtistaðnum 22 ásamt Reyni og tókust með þeim félugum góð kynni. Við lendinguna í morgun gróf því Ed upp símann hjá Reyni og hafði samband., voru hann og Baron því kampakátir að heyra af Rewind kvöldi Breakbeat.is í kvöld. “Þeir ætla að kíkja í kvöld, fyrst og fremst til að skemmta sér. Ég efast um að þeir taki í spilarana. En maður veit aldrei hvað þetta gæti snúist uppí” Sagði Reynir aðspurður um komu Ed Rush og Baron.

[Tekið orðrétt af breakbeat.is]