Drum’n’Bass spólað til baka. Í næstu viku stendur klúbburinn Breakbeat.is fyrir svokölluðu Rewind kvöldi á skemmtistaðnum Kapítal, Rewind kvöldin eru orðin fastur liður í fjölbreyttri dagskrá Breakbeat.is og efnt er til eins slíks á hverju ári. Á kvöldinu mæta til leiks plötusnúðarnir Reynir og Kristinn og þeir vita það sem að hafa fyglst með drum’n’bass senunni síðustu ár að hér eru svo sannarlega engir aukvissar á ferð. Þeir félagar hafa lítið látið á sér bera bakvið spilarana síðustu misseri en meira hefu borið á yngri kynslóð plötusnúða, því er það mér mjög mikið ánægjuefni að þeir félagar geri smá “come-back” og taki Rewind kvöldið að sér.

Á Rewind kvöldi Breakbeat.is er eins og nafnið gefur til kynna spólað til baka í drum’n’bass tónlistarsögu síðustu ára, stiklað á stóru og rjóminn af vinylútgáfu þessara ára fær að hljóma um öflugt hljóðkerfi ofurklúbbsins Kapítal. Það er nátturulega ekki að spyrja að því að á góðu Rewind kvöldi myndast gífurlega góð stemning og oft má sjá kunnuleg andlit úr fotíðinni, andlit sem að á tímabilum unnu sér best á drum’n’bass kvöldum á virkum dögum.

Ég vill að sjálfsögðu nota tækifærið og hvetja alla sem að hafa gaman af djönglinu og drum’n’bass’inu að láta sig ekki vanta á Rewind kvöldið, hvort svo sem að það jungliztar af gömlu kynslóðini eða þeim nýrri.

// Breakbeat.is Rewind
// Fimmtudaginn 1. apríl
// Reynir og Kristinn
// Kapítal, 500 og 18 ár inn.


… og svo eins og fremsti íslenski tónlistarmaður samtímans segir:

Góðar stundir.