Miðasala á tónleika hljómsveitanna Kraftwerk og Pixies hefst í næstu viku. Miðasalan á Kraftwerk sem spila í Kaplakrika 5. maí hefst mánudaginn 22.mars og miðasalan á Pixies sem spila í Kaplakrika þann 26. maí hefst miðvikudaginn 24. mars.

Miðasalan fer fram í verslunum Skífunnar; Kringlunni, Smáralind og Laugavegi. Einnig verður miðasalan í Bókabúð Andrésar Pennanum, Akranesi – Pennanum Eymundsson Glerártorgi, Akureyri - Hljóðhúsinu, Selfossi og á www.icelandair.is/haenan. Miðaverð er 4500 kr.

Fyrirtækið Hr. Örlygur sem stendur fyrir báðum tónleikunum hefur ákveðið að þeir sem kaupa miða á Kraftwerk stendur til boða að kaupa jafnmarga miða á Pixies og þeir kaupa á Kraftwerk. Þetta er gert til að koma til móts við þá viðskiptavini fyrirtækisins sem ætla á báða tónleikanna en vilja ekki standa í í tveimur löngum röðum í sömu vikunni. Ekki verður hægt að kaupa staka miða á Pixies fyrr en miðvikudaginn 24. mars.

Hr. Örlygur Ehf./Mr Destiny Ltd.