Föstudaginn 5. september næstkomandi munu verða straumhvörf í skemmtanasögu breakbeat.is því þá munu nokkrir vel valdir snúðar leggja land undir fót og halda upp á Akranes. Þar verður slegið höndum saman með þeim Ofur-liðum og allt gert vitlaust á skemmtistaðnum Efri Hæðinni við Bárugötu.

Fjörið mun hefjast kl. 22 og verður frítt inn til miðnættis en 500 króna aðgangseyrir eftir það og til lokunar, klukkan 3. Og athugið, aldurstakmark er aðeins 18 ár þannig að þetta er gott tækifæri fyrir sem flesta til að sleppa sér við tóna trommu & bassa um helgi!

Line-up kvöldins verður aldeilis ekki af verri endanum:
*DJ Maggi B (Ofur)
*DJ Gunni Ewok (Breakbeat.is)
*DJ Andri (Breakbeat.is)
*DJ Bjöggi (Breakbeat.is)
*DJ Óli (Ofur)
*DJ Tryggvi (Breakbeat.is)
*Mars Live PA (Breakbeat.is)

Aldrei er að vita nema aðstandendur muni reyna að koma á fót sætaferðum upp á Skaga fyrir áhugasama tjúttara, bíðið spennt eftir frekari upplýsingum á <a href=“www.breakbeat.is”>www.breakbeat.is
</a