Og í tilefni af því ætla ég hér að rita eittþúsund orða grein sem þið kæruð lesendur Raftónlistaráhugamálsins á huga gætuð lesið, ykkur til dægrastyttingar (einmitt) .. þar sem greinar hafa verið að skornum skammti hér á bæ.

Ég ætla ekki að fjalla um neitt eitt sérstakt fyrirbæri heldur ætla ég bara láta flakka hvað MÉR FINNST.

MÉR FINNST:

Að Dreamworld ætti að hætta flytja inn lélega skífuskankara.

Að allir sem vettlingi geta valdið mæti á Josh Wink þann 14.mars.

Að þú kæri vinur sendir inn svosem eins og eina grein, mynd, könnun eða jafnvel bara einn helvítis TENGIL á Raftónlist (aðeins itl að fá smá hreyfingu á þetta)

Að einhver gullfalleg stelpa sendir mér skilaboð og tjáir mér ást sína. (verður samt að geta elskað aðra stelpu líka)

Að þú ættir að gera sjálfum þér greiða .. slökkva á tölvunni , fara út (niðrí bæ, what so ever) , kaupa þér eitt stykki ís í brauðformi (jafnvel kúluís) og taka röltið með kærustunni (vini eða ættingjum) og hafa það gott í sólinni !! (#) fyrir tölvunjerða.

En já eins og ég var að koma hér að .. mér leiðist , þannig ég er bara farinn út :)

Eigiði ánægjulegan dag