Fyrst við erum í topp5 listunum þá fór ég að velta fyrir mér hvernig ég mundi
raða upp topp5 yfir íslensk danslög.

Mér datt strax í hug T-world - Purple. Síðan eru þetta lög eins og Hyper
Ballade með Björk, Call of the Wild með Gus Gus, Icelandic Conspiracy lagið
(hvað heitir það aftur… á einhver það á mp3?), T-World - Anthem, VIP - Gus
Gus, Believe - Gus Gus, Ruffige með Ajax og Goldie, Paradise með Tomma og
Venusi… Hverju er maður að gleyma? Diskó friskó? ;)

Ég hugsa ég mundi setja Purple í fyrsta sæti. Hvað segið þið?
Skellum upp listum, skoðum þetta.

Rave on!


Og verðlaunaleikur dagsins. Ef einhver á þetta blessaða Icelandic Conspiracy
lag á .mp3 og getur sent mér link þá skal ég setja hann á gestalista á Sander
Kleinenberg… Fyrstir koma, fyrstir fá. Næg bílastæði.