Byrjaði 5 ára í ballet, hætti svo 11 ára og byrjaði aftur 15 ára (búin að vera í ár núna). Svolítið slæmt því ég held að þetta séu mjög mikilvæg ár til að bæta sig í ballet og ná tækninni, til dæmis mun ég aldrei verða jafn góð og hinar stelpurnar sem hafa dansað stanslaust í 10 ár. Eeen það er allt í fína! Ég er bara að dansa því ég hef gaman að því en stefni alls ekki á einhverja atvinnumennsku og líður betur þegar ég er í einhverri hreyfingu og þá er ballet eiginlega eina íþróttin sem ég nenni að vera í því ég er hræðilega mikill antisportisti haha