Fyrir þær sem búa á suðurnesjum og langar til að dansa, en geta ekki farið alltaf á höfuðborgarsvæðið til þess, að þá vil ég benda á að það er verið að kenna ballett og djass í íþróttahúsinu á Vallarheiði.

Hún heitir Bryndís sem er með þessi námskeið. Hún er búin að ferðast um allan heim sem dansari og danskennari.

Hún er með ballett námskeið fyrir yngri stelpur. Og svo fyrir þær eldri, 14 - 20 ára, og þá er það ballett og djass (ballett í 45 mín og svo djass í 45 mín).
Þetta er rosalega skemmtilegt námskeið og Bryndís er líka rosalega skemmtileg. Þetta eru byrjendanámskeið, þannig fyrri reynsla er ekki nauðsynleg, held ég.

En þið sem hafið áhuga, þá er e-mailið hennar: brynballett@gmail.com