Update!
Könnun hafin!

————–

Þar sem gamla meistaraverkið hvarf með breytingum Huga, þá vantar okkur nýjan banner fyrir þetta heimili okkar. Öllum er velkomið að reyna.

Bannerinn þarf:

* að vera 629 pixel á breidd, 107 pixel á hæð.
* að tengjast CoD leikjunum. Helst ekki bara skot úr ákveðnum leik, heldur eitthvað einkennandi fyrir seríuna. Þó er ekkert bannað.
* að vera flottur. Krot úr paint er ekki flott, það er í besta falli fyndið.

Sendið það svo inn sem mynd hér á áhugamálinu, titlað “Banner - Notendanafn höfundar”. Engin takmörk eru fyrir hversu marga hver og einn sendir inn.

Svo skulum við segja að þið hafið fram á mánudaginn 22. sept, eða eina viku, til að senda inn.

Svo ef það verða margir flottir, skulum við hafa kosningu. Þrátt fyrir að hér ríki einræði…