Sælt veri fólkið.

Í gær var ég tekinn inn sem nýr stjórnandi á Call of Duty áhugamálinu og erum við nú þrír að sinna þessu, ég, Theory og izelord.
Þeir sem hafa stundað þetta áhugamál hve lengst vita eflaust að það hefur lengi verið rætt um að fá nýjan mann til að hjálpa til við þetta. Ekki var ég alltaf algjörlega sammála þessu þar sem hann Gústi izelord hefur alltaf haldið þessu áhugamáli á góðu leveli og höndlað öll þau mál sem komið hafa upp af príði. Þar að auki er hann einn af frumkvöðlum CoD á íslandi, þakkir fyrir það.

Ég vona að þetta samstarf muni ganga vel og auka virkni á þessu áhugamáli en hún er nú reyndar mjög góð þar sem /cod áhugamálið mældist í maí mánuði sem 16. vinsælasta áhugamálið á þessum 7. vinsælasta vefi á íslandi.

Í lokin vill ég bara minna alla á #CoD.is á ircinu =)

Með fyrirfram þökkum,
Hjalti Sveinsson - Killerade