Jæja, mér er illt í bakinu því stóllinn minn er ógeðslega lélegur og með geðveikann hálsríg svo ég hef þetta stutt og laggot svo ég geti drullast fram og legið yfir fréttum.

Þannig er mál með vexti að dedi elskurnar eru ekkert búnar að svara meira hvort þeir ætli að halda jólamót eða ekki. En ég ákvað til að rjúfa spennuna í loftinu varðandi það hvort það yrði jólamót eða ekki, þá ákvað ég að byrja að plana mót. Tókum okkur saman ég og ecco|noxi og byrjuðum að plana, ég ræddi við Omerta, og hann féllst á að hafa svona scorekubb fyrir keppnina hér á huga. Þar sem hægt er að fylgjast með stöðu mála.

Ég vil taka fram að ég er ekki að gera þetta til að skjóta einhverjum aðilum ref fyrir rass, ég er bara að gera þetta svo óvissan hverfi og mér finnst samfélagið þurfa á þessu að halda. Ég viðurkenni fúslega að það eru fjölmargir aðilar í samfélaginu hæfari til verka í þessum málum en ég, og vilji þeir grípa inní þá er þeim það velkomið. Ég þigg alla þá hjálp sem mér verður boðið, (nema frá fólki sem mér finnst leiðinlegt) og blablabla…


Allavega skráning er HAFIN endilega bara pm-a mig (setpoint|svalur) eða noxa (|eCCo|Noxi)á #cod.is eða #setpoint.

Þá bara liðsnafn, spilara sem ætla að vera með, og taka fram hver leaderinn sé svo ég geti haft beint samband við hann.

Endilega komið með comment hér um áhugann, gagnrýnið mig, skjótið fyndnum skotum á mig.

Og endilega spurjið að vild.

Takk fyrir.

P.S. SKRÁNING HÆTTIR KLUKKAN SEX Á AÐFANGADAGSKVÖLD.