Ég skrifa þetta frá Suðrinu sæla, beikonið og eggin næstum tilbúin, sólin heit og 23 kleinuhringir á hliðarlínunni.
“Drinking cold beer on a friday night; wearing them jeans that fit just right” lýsir þessu best.
Allavega, þá verð ég að segja að ég er ósammála nokkrum lykilmönnum í þessu samfélagi um Enginn. Margt er hægt að segja um þennan dreng en hann er ekki lélegur. Hann hefur trekk í trekk flengt mörgum af okkur eldri jálkunum, síðan er varla hægt að líta framhjá því að hann er í academy liði. Fyrst eru menn að kvarta yfir því að Enginn svindli, síðan að hann sé ömurlegur, næst kemur að hann spili bara með betri spilurum - þetta er ekki búið - síðan er kvartað yfir því að hann hafi gott fps. Almáttugur, er þessi þráður Jersey Shore eða?
Í grunninn séð eru flestir pirraður út í Enginn því hann lítur stórt á sig. Enginn furða; drengurinn vinnur okkur alla þegar hann spilar á móti okkur. Ég hygg að það væri best að vinna hann bara og kvarta ekki yfir FPS eða því að hallzky hafi ekki spilað í 2 vikur.
Beikonið tilbúið! Adios!