Já við IceAce menn erum frekar stoltir af honum Hallmari ‘Hallz’ sem er nýgenginn til liðs við okkur.. en það er nú önnur saga.. Því nú í dag var Hallmar krýndur framhaldsskóla meistari í hornafjarðarmanna ! læt fylgja hérna greinina með. TIL HAMINGJU HALLMAR !!

Þó margir hafi valið útivist í dag voru það líka margir sem kusu að vera innandyra. Að vanda var útvarpshópurinn að störfum. Nokkrir höfðu valið tölvuvinnslu og enn aðrir að tefla.
Tæpir þrír tugir höfðu skráð sig í árlegt mót í Hornafjarðarmanna þar sem nýr framhaldsskólameistari yrði krýndur. Í úrslitum spiluðu þau Hallmar, Hulda Björg og Sigríður. Það varð Hallmar sem stóð uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Sigríður og Hulda Björg í því þriðja. Öll fengu þau gjafabréf upp á pizzumáltíð frá Hótel Höfn. Við óskum Hallmari til hamingju með titilinn.



http://www.fas.is/images/stories/frettir_v10/manni.jpg