Sælir cod4 spilarar og aðrir hugarar.

Ég setti inn könnun hérna um hvort það væri áhugi á að halda jólamót í cod4 og það hafa verið góðar undirtektir við það.
Hvort sem það eru bara cod spilarar sem kusu eða aðrir líka.

Þannig næsta skref er að athuga hvað myndu mörg lið mæta til keppni.

Við myndum vilja fá svona smá sýn á þetta áður en við festum dag og setjum upp auka servera.

Þetta yrði sennilega haldið einhvern daginn milli jóla og nýárs.

En þeir sem vilja skrá lið sitt á þetta mót sendið mér pm.
Aðalega til að sjá hvað mörg lið myndu mæta og ef við náum minnst 6-8 liðum þá verður mótið.

ÞETTA ER AÐEINS TIL AÐ SJÁ STATUSINN Á ÞESSU.

Kv. Proto<>Haukz




Bætt við 20. desember 2007 - 09:00
Það eru 7 lið búin að boða komu sína!
Viljum endilega fá fleiri!
Koma svo, veit um allanvega nokkur í viðbót sem geta komið.
og þið sem eruð clanlausir reynið að finna ykkur menn á xnet og gera nýtt lið! :)