MAX lið á þessu móti verða 12…mér sýnist sem að 13-14 lið séu að spá í þátttöku. Ákveðið fyrir löngu að það yrðu max 12 lið, annars tekur þetta of langan tíma og ég er ekki tilbúinn að hafa fleiri teymi í fyrsta móti sem mahr heldur, kann fínt við tölurnar 8 og 12, en ef það verða MJÖG mörg lið, þá mun ég líklegast auka kvótan (14 eða fleiri teymi).

Þessvegna verður bara fyrstur skráir fyrstur kemst inn, þá er ég að sjálfsögðu að tala um huga.is/cod skráningu, ekki á msn prívat og persónulega við mig.
Liðin sem skráð voru í hinum korkinum mega endilega staðfesta skráningu hérna, einnig hefur verið einhver ruglingur með ýmsa leikmenn og í hvaða liði þeir verða (t.d jaxli) og væri fínt ef þau lið myndi settla hvoru liðinu hann verður í.

En þá get ég einnig tilkynnt að R.Kisildalur sendir MJÖG líklega 2 lið, stefnum hátt og það vantar enn 1-2 playera í annað liðið, fínt væri að áhugasamir töluðu við mig á msn EKKI á þessum kork.

Allaveganna, þau lið sem eiga eftir að skrá sig, gera það sem fyrst svo að það verði ekki orðið full þegar þið ætlið að skrá ykkur, t.d verða EKKI 13 lið á þessu móti, það er ekki séns, kanski ef náð er mun hærri tölu er hægt að skoða það.

Þið hin sem eruð skráð, helst bara posta roztera hérna og svona, staðfesta þá, gott fyrir hina sem eru að reyna að redda mönnum að vita hverjir eru uppteknir og hverjir ekki.

Bætt við 28. ágúst 2007 - 23:54
Skráð lið, í efsta eru lið sem eru 100% hvort sem það verða 8 eða 12 lið, í næsta eru þau sem verða með ef nást 12 lið og svo hin ó-ákveðnu

Attitude
ecco
R.Kisildalur
R.Vifilfell
Superior
dimension
Filthy
venoom

Serenity
Dedication
uoM



Adios? (bippi og ljungberg báðir búnir að tilkynna þáttöku)