Þar sem meirihlutinn af þráðunum er eitthvað rugl þá sakar ekki að minast á þetta.
Ég á nú ekki afmæli eða neinn sem ég þekki. En um daginn þá unnu ég og mínir menn Odd, Klemma og þeirra menn í fótbolta. Það var sætur sigur í baráttunni um 17-20 sætið. Því miður fyrir mig og til allrar hamingju fyrir þá þá gat ég eiginlega ekkert spilað í leiknum því skórnir sem ég var í voru svo þröngir að ég var marinn á ristunum og kominn með hælsæri.