Undanfarið hefur ekki vantað að fólk sendi inn afmæliskorka þegar einhverjir sem spila CoD eiga, já, afmæli.

Allt í lagi, til hamingju allir, en með hverjum korknum hafa svörin orðið meira bull og nýlega niðrandi. Tali ég ekki um þráðinn eftir Razel. Ég ætlaði ekki að eyða þeim korki heldur bara ritskoða þá sem voru með leiðindi, en það hefði ekkert orðið eftir. Korkahöfundur getur ekki áfellst mig þar sem hann svaraði ekki fögrum orðum frekar en aðrir. Ekkert skot á Razel, skil vel að hann hafi orðið pirraður á þessum svörum.

Ég verð bara að mæla með að fólk hugsi sig um áður en það sendir inn afmæliskorka, eins og það á alltaf að gera þegar það sendir inn efni eða svarar fólki. T.d. um pizzu bakstur.

Hinsvegar ef fólk getur hagað sér er mér alveg sama. En um leið og ég sé eitthvað svona aftur mun ég gera eitthvað í því og vill ég bara minna fólk á að sí endurtekin brot leiða til banns. Að vera með kjaft er brot. Sama hvort það er nýr þráður eða svar.