jæja, ég asnaðist auðvitað til þess að setja upp 1.3 plásturinn í staðin fyrir 1.2 og get því ekki spilað á simnet leikjaþjónunum.

Og nú spyr ég: get ég lagað þetta, sett upp 1.2, án þess að uninstalla leiknum?

Taka skal fram að ég er í vandræðum með að komast yfir eintak mitt af leiknum þessa stundina og þætti því gott að geta lagað þetta á einhvern annan hátt en að uninstalla.