Ég ætla að taka að mér að vera gáfaði gaurinn í þessu máli. Þetta mál er komið í öfgar. Ekki bara okkar megin heldur Óla megin líka. Róum okkur smá. það má ekki einu sinni gera kork um almennilega eftirrétti þá verða allir creizý í kingpin.

Ég ætla byrja að tala við okkur í CoD samfélaginu. Semsagt alla nema Kingpin og þessa óla side. Persónulega hata ég hackera. Ég vil ekki fá þá í cod aldrei. Ég var ekki lítið reiður eftir þetta bann á Óla. Svo þoli ég hann ekki heldur hér á huga.is/cod með þessar hundrað tilvitnanir og vesen. En ég svara því bara ekki. Ég nenni því ekki.

Óli og Kingpin dúddar. Róið ykkur hér á huga.is. Þið þurfið að svara hverjum einasta gaur. Svo kemur ykkur á óvart að fólk sé pirrað! Fólk fer að fara frá að vera pirrað yfir í að vera reitt og það breytist í hatur. Óli þú ert í pásu frá CoD taktu þér leyfi og láttu bara CoD í friði. Líka þetta áhugamál. Davíð hættu þessu o rly kjaftæði með þessa ljótu uglu. Það er enn eitt dæmið um hvað pirrar fólk.

Hættum þessu kjaftæði. Það fara 1000 korkar héðan á forsíðu á heitar umræður. Allir þeir korkar eru eitthvað kjaftæði og skítkast. Svo þetta áhugamál er orðið bara meira skítkastið

Róum okkur á svörunum. Ég rétt vona að þessi korkur rati ekki á heitar umræður. En ef hann gerir það þá vona ég að það sé útaf fólk tekur vel í þetta og ekkert skítkast.
kv Heiða