Já ég ætla að búa til lista um þau lið sem mér finst vera best, styrki þeirra og veikleika.

1. Dedication 100%

Ótrúlega góðir, þeir bera höfuð og herðar yfir alla aðra, þó eru lið eins og setpoint, cruz og uoM ekki langt í burtu. Fanatic er að mínu mati bestur en jih og typhoon eru einnig góðir eins og svosem allir í dedication.

2. Setpoint 94% (af dedi)

Rændu þessu sæti af uoM, þarna er einhverskonar þríhyrningur í gangi, setpoint vinnur uoM, uoM á séns í dedi, dedi ownar setpoint. Blmbrg, drezi, hemmi og fleiri góðir, þarna er samvinna aðalmálið og menn hörkugóðir, dedi má svo sannarlega passa sig!

3. uoM (92% af dedi)

Hörkugóðir, þarna eru lykilmenn smuffy og weazel, á góðum degi eru þeir óstöðvandi, hörkulið þarna í gangi.

4. Badass (85%)

Hafa ekki spádómsgáfu og framtýðarsýnina sem að cruz hafa, en þarna eru menn eins og ingvarK og chii, meistari urri og Klemmi, einnig fleiri…þeir eru rosalega góðir og eitt skemmtilegasta liðið í dag!

5. Cruz (80% af dedi)

Ótrúlega góðir, templer er þarna maðurinn, hann hefur 100% natural skill þó hann sé ekki með sömu framtíðarsýn eins og aðrir í klaninu, en framtíðarsýn leikmanna cruz og byssuhæfni templers gerir þá að einu besta klaninu í dag!

6. Devotion (85% af dedi)

Heiddi, war, laukzi, who, trixer, pest, clayman…Þetta eru frábærir gaurar, góðir í cod og mjög gaman að scrimma við þá, þeir eru hörkugóðir og eru til alls líklegir, þeir eru aðeins betri en cruz, samt set ég þá í 6 sæti þar sem að við höfum unnið þá en ekki cruz…

7. Kingpin (65%)

Purki, Dickhead, Horodo og fleiri, hörkugóðir, hafa verið að stríða liðum eins og devotion undanfarið, samt eru þeir of óstöðugir til að eiga nokkurn séns í að taka atlögu að devotion, sigla nokkuð auðan sjó í 7 sætinu!

8. Toxic (60%)

Hörkugóðir, alvöru lið, directX og fleiri, seven og aðrir góðir gaurar, ég er djarfur að setja okkur fyrir ofan þá, en það er einungis mín skoðun!

komið endilega með skítköst, cruz getið ritskoðað mig og svona, allir vinir, einnig megiði koma með venjuleg skítkastslaus komment og endilega komið með ykkar lista!!!

(prósenturnar eru breytilegar eftir dagsformi og fleiru)