Jæja núna ætla ég aðeins að tuða því að ég er orðinn svo ógeðslega pirraður á þessum hlut.

Það er þannig að þegar að maður er á server og er að spila, það eru kannski 20 manns á servernum og það eru allir með shotgun.

Þetta fer verulega í taugarnar á mér serstaklega þar sem að shotgun er frekar mikill galli í þessum leik að mér fynnst. Hún er of góð miða við hinar byssurnar.

En þegar að þetta er svona á server að allir séu með shotgun þá er lítið hægt að gera annað en að nota sjálfur shotgun en mér fynnst það bara ekki gaman.

En tilgangur minn með þessum korki er að ég skora á þá sem að eru með þessa servera að setja einhverskonar pam mót eða eithvað sem að er þannig að 1 lið getur bara haft 1 shotgun og 1 mann með sniper, Það er þannig á mjög morgum utlenskum serverum og það er mjög gaman að hafa það þannig sérstaklega þar sem að þetta er þannig í scrimmum að það megi bara vera 1 shotgun og 1 sniper.

En ég skora á ykkur að hafa allavegana 1-2 servera sem að eru með svona.
IRC - #dedication.is