Jæja, enn og aftur er ég hérna með póst um nýtt eða dautt clan.

Hlutir komu upp og áhuginn virtist ekki vera nægur í endan.

Við héldum að við værum loksins orðin góð heild en annað kom í ljós þegar brestur kom í liðið.

Allt hefði gengið upp, en í svona litlum hóp mátti ekkert koma uppá.

Þessi hópur var enn eitt afkvæmi Wanted, og ættli það sé ekki kominn tími á að slíta þessu eftir langt samstarf.

Ekkert er ljóst um framtíðina en við getum þó verið ánægðir með tímana saman og vill ég fyrir hönd Filthy/uC og leyfist mér? Wanted, þakka fyrir okkur. Þetta eru búnar að vera ánægjulegar stundir á Skjálfta og á serverum.

Takk fyrir okkur.





BF2 divison continues…