Vildi bara láta vita að Caution eru að byrja á fullu aftur í cod eftir að hafa látið lítið fyrir okkur fara síðan í byrjun nóvember á síðasta ári.

Við erum nokkuð fámennir í augnablikinu en erum þó með 4 í trial en ætlunin er að fá svona 3-5 nýja menn inn í clanið þar sem við erum eiginlega bara 5-6 virkir en það eru 7 í claninu sjálfu.

En með hjálp trial mannanna þá getum við alveg náð í scrimm á flestum tímum undir flestum kringumstæðum en best er að fá scrimm kl. 8 eða seinna um kvöldið, ekki fyrir 8.

Allar áskoranir skulu berast í gegnum Ircið á #Caution rásinni og spjalla þá við GigaBytE eða Scythe eða einhvern annann sem er í Caution og sá reynir að koma því til skila, þið getið líka sent inn áskoranir á spjallinu og best er eiginlega að þið sendið þangað og þá með 1-2 daga fyrirvara, allavega á meðan við erum fámennir.

Ef þig langar að ganga til liðs við okkur þá þarftu helst að vera 16 ára eða eldri en 15 ára getur þó sloppið. Svo ef þig langar að ganga til liðs við okkur þá þarftu að kíkja á spjallið okkar og senda umsókn og reynum við að gefa svar sem allra fyrst um hvort einstaklingur fái Trial/Inngöngu eða ekki.

Að sjálfsögðu viljum við vinna marga leiki og þannig en aðal mottóið okkar er þó að hafa gaman af því að scrimma og vonum við að önnur clön muni hafa gaman af því að spila við okkur í framtíðinni.

Vildi koma þessu á framfæri þar sem fáir eru nú á irc rásinni okkar (#Caution) og kannski ekki allir alltaf að skoða síðuna okkar (www.caution-clan.tk)

Með kveðju GigaBytE og Scythe.
BloOdDeAleR - Bluddy - GigaBytE