Sælir spilarar.

Ég henti upp Rifles only server í boði BTnet.is.

IP:port á hann er 81.15.33.131:28960

Ég er að keyra mod á þessum þjóni sem gerir það að verkum að American er skipt út fyrir Russian, skammbyssur eru ekki virkar og hver og einn fær eina handsprengju sem hægt er að “cook-a”, þ.e. þú getur haldið inni takkanum og þá líður minni tími þangað til sprengjan springur eftir að þú sleppir henni.

Þegar þið tengist þjóninum þá sýnir vopnavalmyndin öll vopn fyrir hvert lið en þið getið samt sem áður eingöngu notað rifflana.

Í dag keyrir þessi þjónn tdm. Ég mun kannski hafa dm líka, ég vil fyrst sjá hvernig viðbrögðin við því verða.

Þetta er að sjálfsögðu 1.5 þjónn.

Kveðja,
Turtles ^ Striki.