Finnst ykkur að það ætti að setja allavega einn íslenskann server?
mér finnst það afþví að það er ekkert jafn pirrandi og að ætla í þennan yndislega leik og þá er serverinn fullur. Það ætti allavega að vera einn server í viðbót. Já og meðan ég man, mér finnst friendly fire ekkert smá pirrandi. En það er reyndar bara afþví að maður kannski drepur vin sinn tvisvar og þá verður hann geðveikur og vill endilega láta kicka manni, og það sem verra er fólk kýs að manni verði kickað. Mér fannst betra þegar það var svona reverse þannig að maður missti sjálfur líf á að skjóta í vin sinn. Þá varð hann ekki alveg geðveikur og þá koma ekki svona ógeðslega pirrandi gaurar sem eru bara að drepa vini sína.